Frumvarp forsætisráðherra um rannsóknarnefnd sem kannar aðstæður barna sem vistuð voru á einkaheimilum hefur verið samþykkt úr ríkisstjórn. Rannsókn fer fram meðal annars á Bakkakotsmálinu en einnig öðrum heimilum þar sem börn voru vistuð.„Þetta er nýmæli vegna þess að í gegnum tíðina hefur þetta einskorðast við opinber meðferðarheimili,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.„En það skiptir máli að við sköpum þarna rými til þess að bæði gera úttekt á barnaverndarkerfinu aftur í tímann en líka til þess að fólk fái tækifæri til þess að segja sína sögu,“ segir hún.Frumvarpið verður næst lagt fyrir þingið og vonast Kristrún til að það verði samþykkt fyrir þinglok.„Þetta fer hratt og örugglega fyrir þingflokka meirihlutans sem að ég býst nú ekki við öðru en að samþykki málið hratt og ör