Formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis segir líklegt að frekari breytingar verði gerðar á frumvarpi um brottfararstöð milli annarrar og þriðju umræðu. Atkvæðagreiðslu um frumvarpið lauk rétt fyrir hádegi.Ráðgert er að brottfararstöð verði á Suðurnesjum vegna nálægðar við Keflavíkurflugvöll en stöðin, sem líkt og fangelsi er lokað úrræði þótt ekki sé gerð krafa um að þeir sem þar starfa séu fangaverðir, er ætluð útlendingum sem senda á úr landi. Gagnrýni á frumvarpið hefur einkum snúið að því að til stendur að þar verði barnafjölskyldur vistaðar. Meirihlutinn hefur lagt fram breytingartillögu sem felur í sér að barnafjölskyldur verði vistaðar í aðskildu húsnæði frá einstaklingum.Þingmenn meirihlutans auk þingmanna Sjálfstæðisflokks styðja málið en Miðflokkurinn sat hjá við atkvæ