Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir niðurstöðu kosninganna skýrt kall eftir breytingum í Reykjavík. Hún segir borgarbúa hafa áhyggjur af fjármálum borgarinnar og skynja að „rugl“ og óráðsía hafi verið í gangi. Nýr meirihluti hafi skýrt umboð til að ráðast í niðurskurð, fækka millistjórnendum og draga úr sóun.