Skógarbjörn réðist á fjóra og særði einn alvarlega

Skógarbjörn réðst á fólk í Fukushima í norðurhluta Japans í dag og særði fjóra. Árásir bjarna í Japan hafa færst í aukana og í fyrra drápu dýrin 13 manns. Fyrstu árásir bjarnarins í morgun voru á tvo starfsmenn verksmiðju sem framleiðir bílavarahluti. Eftir það réðst björninn á einn í íbúðahverfi og svo á annan í nálægri verksmiðju. Einn er alvarlega særður, aðrir minna. Sífellt algengara hefur orðið síðustu ár að fólk sjái birni á ferli. Birnirnir hafa sést fara inn í hús, verið á ferli við skóla og í matvörubúðum. Á þessum árstíma eru birnir að vakna úr vetrardvala. Björninn á gangi fram hjá skrifstofu í Fukushima í Japan í morgun.AP/Kyodo News / Uncredited
Skógarbjörn réðist á fjóra og særði einn alvarlega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd