Slettu úr klaufunum í Holtseli

Gleðin var við völd í Holtseli í gær þegar kúnum á bænum var hleypt út í sumarið. Þær höfðu verið inni síðan í október og greinilegt að þær voru frelsinu fegnar.Sumarið hefur látið bíða eftir sér fyrir norðan og vorið hefur verið heldur napurt fyrir norðan. Kýrnar fara því óvanalega seint út í ár. Fjöldann allan af gestum bar að garði og skemmtu þeir sér ekki síður en kýrnar.Um 60 kýr eru á bænum og eru langir bjartir sumardagar framundan hjá þeim. Fyrstu dagarnir fara hins vegar í aðlögun þar sem kýr geta sólbrunnið líkt og mannfólkið.Kýrnar á bænum Holtseli í Eyjafjarðarsveit fengu langþráða sólarglætu í gær þegar þær fengu að fara út í fyrsta skipti síðan síðasta haust.
Slettu úr klaufunum í Holtseli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd