Meirihlutinn í borginni vill stofna nýtt stig í skólakerfinu til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, svokölluð dagheimili. Útfærsla þess verður í höndum nýs leikskóla- og daggæsluráðs.Þetta sagði Hildur Björnsdóttir, sem tekur við borgarstjórastólnum í dag, í Morgunútvarpinu á Rás 2. Hún segir nýjan meirihluta vilja leita fjölbreyttra leiða í leikskólamálum.„Við erum með fyrirmynd núna þar sem Arion banki hefur opnað daggæslu fyrir börn starfsmanna. Við höfum það líka á okkar verkefnalista, við viljum innleiða bara nýtt stig í þetta kerfi sem væri þá dagheimili. Það væri þá svona millistig sem tekur við börnum eftir fæðingarorlof og undirbýr þau fyrir leikskólann, einhvers konar brú yfir í leikskólann,“ segir Hildur.„Og það væri einfaldara í uppsetningu vegna þess að við erum