Lögreglan á Suðurnesjum leitar vitna að árekstri á Aðalgötu í Reykjanesbæ á þriðja tímanum eftir hádegi í gær. Ökumaður ók bifreið á gangandi vegfaranda og yfirgaf síðan vettvanginn án þess að athuga með líðan þess sem hann hafði ekið á.Lögreglan vekur athygli á þessu í færslu á Facebook-síðu sinni:„Í gær um kl 14:20 var ekið á gangandi vegfarenda á Aðalgötu við Nettó í Reykjanesbæ. Ökumaður ók í burtu án þess að huga að þeim sem ekið var á, en sá slasaðist nokkuð á hendi. Við leitum að vitnum að þessu óhappi sem og biðlum til þeirra sem hugsanlega gætu verið með myndavélar sem ná yfir svæðið að vera í sambandi við okkur,“ segir þar.