Donald Trump ætlar að hætta við stofnun sjóðs sem ætlað er að greiða fólki skaðabætur vegna meintrar vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna gegn því. Ætlanir dómsmálaráðuneytisins um stofnun sjóðsins hafa verið harðlega gagnrýndar af bæði Demókrötum og Repúblikönum og þá meðal annars á þeim grundvelli að með honum vildi Trump gefa bandamönnum sínum peninga skattgreiðenda.