Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að íslenskir bankar hafi hagrætt mikið í rekstri sínum síðastliðin ár. Sú hagræðing skili sér þó mögulega ekki til viðskiptavina með fullnægjandi hætti.Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast með úttekt systurstofnunar sinnar í Noregi á samkeppni á bankamarkaði. Þar í landi hafa fyrri athuganir bent til lítils hreyfanleika viðskiptavina, hindrana fyrir nýja keppinauta og markaðsaðstæðna sem geti auðveldað samhæfingu vaxtastigs milli banka.„Hlutfall rekstrarkostnaðar af tekjum íslenskra banka hefur lækkað verulega á síðustu árum. Hins vegar hefur vaxtamunur bankanna ekki minnkað samhliða á sama tíma. Þetta þýðir að það hagræði sem hefur náðst hefur kannski ekki skilað sér til viðskiptavina með fullnægjandi hætti,“ segir Páll Gunnar