Hægviðri með lítilsháttar vætu

Það er áfram útlit fyrir hægviðri á landinu með lítilsháttar vætu og hita að 16 stigum. Síðdegis aukast líkur á skúrum, einkum vestanlands. Víkjum að hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Í dag er spáð hægum vindi á landinu. Allvíða þokuloft eða lítilsháttar væta nú í morgunsárið. Síðdegis brotnar skýjahulan væntanlega eitthvað upp, en þá aukast líkur á skúrum og eru mestar líkur á þeim á vestanverðu landinu. Hiti 8 til 16 stig.Á morgun bætir aðeins í vind á norðvesturhluta landsins, norðaustan 5-10 m/s þar. Áfram má búast við skúrum nokkuð víða, en við norður- og austurströndina gæti þokuloft eða smávegis súld látið á sér kræla. Hiti breytist lítið.
Hægviðri með lítilsháttar vætu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd