Þingvallanefnd segir sér ekki heimilt að veita leyfi án dómsúrskurðar til að opna gröf og komast að beinum þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar vegna DNA-sýnatöku. Þessi niðurstaða fékkst á fundi nefndarinnar 6. maí.Fundargerðin birtist á vef Þingvallaþjóðgarðs í gærkvöld og er henni gerð skil á mbl.is. Bein Jónasar voru flutt heim frá Kaupmannahöfn 1946 og eftir langar deilur var ákveðið að finna þeim stað í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum við hlið skáldsins og athafnamannsins Einars Benediktssonar.Fjölmiðlakonan Elín Hirst fer fyrir hópi þess fólks sem stendur að umsókninni ásamt Páli Valssyni sagnfræðingi sem skrifaði ævisögu Jónasar sem kom út árið 1999. Þingvallanefnd voru um miðjan apríl kynnt áform um gerð heimildarmyndar um Jónas Hallgrímsson, ævi hans og störf ásamt þeim áhrifum se