Um það bil 1.100 jarðskjálftar hafa mælst síðan jarðskjálftahrina við Svínahraun vestur af Húsmúla byrjaði 31. maí. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að heldur hafi dregið úr virkninni í nótt en áréttar að það hafi líka gerst fram undir hádegi í gær. Hann telur líklegast að áfram dragi úr virkninni þótt ekki vilji hann útiloka að hún geti færst í aukana. Stærsti skjálftinn í hrinunni er af stærðinni 4,5sem reið yfir laust fyrir klukkan tvö í gærdag og fannst víða. Stærsti skjálftinn undanfarnar tólf klukkustundir var af stærðinni 1,6 og flestir undir þeirri stærð og langflestir smáir. Bjarki segir engin merki um gosóróa og ítrekar að líklegast sé að hrinan sé vegna hreyfinga á flekaskilum við sprungu í Svínahrauni.