Að minnsta kosti 48 hafa látist af völdum ebóla í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó frá því skæður faraldur braust út í þremur héruðum.Heilbrigðisstarfsmaður í hlífðarklæðum.EPA / MARIE JEANNE MUNYERENKANAYfirvöld í landinu tilkynntu þetta seint í gær og sögðu staðfestar sýkingar vera 321 en ekki 282 eins og innviðaráðuneytið greindi áður frá. Ebóla er sérstaklega banvænn veirusjúkdómur sem smitast með beinni snertingu við líkamsvökva eða með snertingu við mengaða fleti.Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsti yfir neyðarástandi í vor vegna Bundibugyo-afbrigðisins sem geisar í Kongó. Það er fremur sjaldgæft, hvorki til viðurkennt bóluefni né lækning við því og dánartíðni er áætluð milli þrjátíu og fimmtíu prósent.