Heilbrigðisstarfsfólk áberandi á lista yfir ríkisstarfsfólk með yfir 1,5 milljónir í mánaðarlaun

Heilbrigðisstarfsfólk, læknar og hjúkrunarfræðingar, er áberandi á lista yfir rúmlega tvö þúsund launahæstu starfsmenn og embættismenn ríkisins í samantekt Fjársýslunnar fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Lægstu mánaðarlaunin á listanum, frá apríl 2025 til mars 2026, nema rúmlega 1.500 þúsund krónum til sérnámslæknis á Landspítala og þau hæstu 6,6 milljónum til framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Þar á milli má finna tæplega 100 framhaldsskólakennara, 63 prófessora, sendiherra, ráðherra, þingmenn, dómara og starfsfólk Landhelgisgæslu og lögreglu, svo dæmi séu tekin. Í lok maí var fjallað um tekjur þeirra 250 launahæstu á vef RÚV og læknar voru 89 prósent þeirra. Ef við horfum til þeirra í næstu sætum á eftir við má sjá tvo dómara við Hæstarétt með rúmar 2,6 milljónir
Heilbrigðisstarfsfólk áberandi á lista yfir ríkisstarfsfólk með yfir 1,5 milljónir í mánaðarlaun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd