Minnst fjórir drepnir í stórfelldum loftárásum víða um land

Rússlandsher hefur í kvöld og nótt gert stórfelldar loftárásir víðs vegar um Úkraínu, sem kostað hafa minnst fjögur mannslíf, og loftvarnarkerfi landsins hafa verið virkjuð. Langdrægum eldflaugum var beint gegn höfuðborginni Kyiv að sögn Tymur Tkachenko, forsvarsmanns hermálayfirvalda í borginni. Háværar sprengingar hafi kveðið við, eldar logi víða, meðal annars í níu hæða íbúðahúsi, og á annan tug hafi særst í árásunum. Yfirvöld í Dnípró, fjórðu stærstu borg landsins, segja minnst fjóra hafa verið drepna í árásunum. Borgarstjórinn í Kyiv, Vitali Klitschko, hvetur íbúa til að halda sig í loftvarnarbyrgjum meðan árásir standa yfir. Forsetinn Volodymyr Zelensky varaði í gærmorgun við að umfangsmiklar árásir Rússa gætu verið yfirvofandi, viku eftir þunga atlögu þar sem Rússlandsher beitti hin
Minnst fjórir drepnir í stórfelldum loftárásum víða um land

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd