Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og friðarverðlaunahafi Nóbels, segist vera á sömu línu og Bandaríkin varðandi framtíðarmarkmið fyrir landið. Stjórnarandstaðan hefur krafist forsetakosninga hið fyrsta.Hún sagði á blaðamannafundi í Osló það hafa verið réttmæta ákvörðun Bandaríkjanna að steypa Nicolas Maduro af stóli 3. janúar til að forða Venesúela frá eyðileggingu og færa landið í lýðræðisátt. Auðvitað hefði fólk ólíkar skoðanir á því hver næstu skref ættu að vera og hvað hver og einn gæti gert. Hins vegar væru markmið hennar og Bandaríkjanna þau sömu. Varaforseti Maduros, Delcy Rodriguez, hefur verið forseti Venesúela til bráðabirgða síðan í janúar. Machado hefur ætíð lýst fullri trú á áætlunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta varðandi Venesúela en hann hefur