Stjórnvöld í Líbanon segja leiðtoga Hezbollah hafa samþykkt tillögu forseta Bandaríkjanna um að hætta árásum á Ísrael í skiptum fyrir að Ísraelsher láti ekki verða af atlögum á Suður-Beirút.Þetta kemur fram í tilkynningu líbanska sendiráðsins í Washington eftir að Donald Trump forseti sagðist hafa átt uppbyggilegt samtal við forystu Hezbollah og Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels. Hann kveðst hafa sannfært báða um að draga úr stigmögnun átakanna.Engar ísraelskar sveitir haldi inn í suðurhluta Beirút og þeim sem þangað stefndu verði snúið til baka að sögn Trumps. „Vonandi hætta Ísraelar og Hezbollah átökum að eilífu,“ skrifaði Trump á Truth Social.Hassan Fadlallah, þingmaður Hezbollah, segir hreyfinguna krefjast algers vopnahlés um gervallt Líbanon. Netanjahú kveðst hafa tjáð Trump