Ljósvist í íbúðum tryggð í nýju ákvæði

Ný ákvæði um ljósvist í byggingarreglugerð, sem tóku gildi 1. maí síðastliðinn, eiga að tryggja að allar íbúðir njóti héðan í frá nægrar dagsbirtu. Sérfræðingar segja ljósvist hafa setið á hakanum árum saman við þéttingu byggðar, með alvarlegum afleiðingum fyrir íbúa.Á undanförnum árum hafa verið byggðar þúsundir íbúða á Íslandi sem myndu ekki standast nýju kröfurnar. „Það má í sumum tilfellum segja að við séum komin með kjallaraíbúðir upp á þriðju hæð,“ segir Anna María Bogadóttir arkitekt í Kastljósi. Hún og Ásta Logadóttir, rafmagnsverkfræðingur og sérfræðingur í ljósvist, hafa rannsakað þróun fjölbýlishúsa hér á landi í þverfaglega rannsóknarhópnum Híbýlaauði.Þær benda á að fólk hafi jafnvel keypt íbúðir í myrkri á veturna án þess að átta sig á að þær yrðu nánast ekkert bjartari á sumr
Ljósvist í íbúðum tryggð í nýju ákvæði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd