Hópur fræðafólks hefur óskað eftir því við Þingvallanefnd að fá leyfi til þess að taka sýni úr beinaleifum þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímsson sem þar hvílir í þjóðargrafreitnum sem stendur að baki Þingvallakirkju. Fjallað var um málið á fundi nefndarinnar í síðasta mánuði, en fundargerðin birt á vefsetri Þingvallaþjóðgarðs í kvöld.