Enn einni flugferð Icelandair var aflýst í morgun þar sem flugmenn fengust ekki á vaktina. Ferðin átti að vera til Zurich í Sviss en frá því að kjaradeilu félagsins og flugmanna þess var vísað til ríkissáttasemjara í upphafi mánaðar hefur alls tuttugu brottförum frá Keflavík verið aflýst, eða samanlagt fjörutíu ferðum til og frá landinu.