Engar vís­bendingar um kvikusöfnun en ríf­lega sjö hundruð skjálftar

Íbúar á suðvesturhorni landsins fundu margir vel fyrir snörpum jarðskjálfta sem reið yfir á öðrum tímanum í dag. Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofu Íslands, segir skjálftana vera hluta af því sem kalla mætti „hefðbundna jarðskjálftavirkni vegna flekahreyfinga“ og að það séu engar vísbendingar um kvikusöfnun og þar af leiðandi ekki von á eldgosi bráðlega.
Engar vís­bendingar um kvikusöfnun en ríf­lega sjö hundruð skjálftar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd