Tugir voru handteknir um helgina þegar mótmælendum og lögreglu lenti saman fyrir utan varðhaldsbúðir Innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, Delaney Hall, í Newark í New Jersey. Hópur fólks sem er í búðunum er í hungurverkfalli vegna ómannúðlegra aðstæðna þar. HÓFU HUNGURVERKFALL VEGNA AÐSTÆÐNA Í BÚÐUNUM Mótmælin hafa staðið yfir í rúma viku og stigmagnast. Þau hófust eftir að hópur fólks sem er í búðunum hóf hungurverkfall. Hópurinn birti opið bréf þar sem hann lýsti hörmulegum aðstæðum, meðal annars útbreiðslu sjúkdóma, ormaétnum mat, ónægri heilbrigðisþjónustu og baðherbergjum sem hann sagði ekki mönnum bjóðandi.Hópurinn viðurkennir að hafa komið til Bandaríkjanna ólöglega en að fólkið hafi upplifað aðstæður sem hafi stofnað lífi þeirra og sumra fjölskyldumeðlima í hættu.„Við komuna inn