Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli

Að sjálfsögðu var afmælissöngurinn sunginn í stjórnsýsluhúsinu en þar var börnum úr leik- og grunnskólanum boðið sérstaklega að koma og svo var opið hús fyrir aðra íbúa nú síðdegis með afmælisveitingum. Margir voru í Hvalfjarðarpeysum í tilefni dagsins.„Hvalfjarðarsveit er frábært sveitarfélag, hér eru alveg dásamlegir íbúar og hér er gott að búa og ég hvet, sem flesta að koma og kíkja í Hvalfjarðarsveitina,” segir Andrea Ír Arnarsdóttir, fráfarandi oddviti Hvalfjarðarsveitar.840 íbúar búa í Hvalfjarðarsveit. En hvað með sameiningu við önnur sveitarfélög eins og Akranes eða Borgarbyggð, er eitthvað þannig í umræðunni?„Það var nú sett viðhorfskönnun í síðustu sveitarstjórnarkosningum og það kom alveg skýr vilji að það ætti ekki að sameina,” segir Andrea.Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli
Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd