Hringvegurinn verður lokaður í norðurátt á 670 metra kafla við Esjumela og 1.500 metra kafla við Kollafjörð frá klukkan 21 í kvöld til 7 í fyrramálið. Hjáleið verður um Þingvallaveg, Kjósarskarð og Hvalfjarðarveg.Verið er að fræsa og malbika vegkaflana. Þeir voru einnig lokaðir liðna nótt vegna framkvæmdanna.