Samfylkingin er stærsti flokkurinn í nýjum þjóðarpúlsi Gallups með 28,4% fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn næststærstur með 23,5%. Samfylkingin hefur verið stærsti flokkurinn í öllum könnunum Gallups frá því í janúar 2023.En ekki er allt sem sýnist.Ef skyggnst er bak við tjöldin og svörunum skipt í tvennt: fyrir og eftir sveitarstjórnarkosningarnar, sem fóru fram 16. maí, koma athyglisverðar niðurstöður í ljós.Sjálfstæðisflokkurinn er stærri en Samfylkingin eftir sveitarstjórnarkosningarnar. Á því tímabili mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 26,0% og 24,9%.Fyrir sveitarstjórnarkosningar var Samfylkingin með 30,6% en Sjálfstæðisflokkurinn 21,9%.Með þeim fyrirvara að þetta eru ekki niðurstöður yfir heilan mánuð má þó segja að þetta sé í fyrsta sinn í rúm þrjú ár sem Sjálfstæðisflokkurinn mælist st