Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir gögnum frá olíufélögunum til að leggja mat á hvort lækkun virðisaukaskatts hafi skilað sér til neytenda.Virðisaukaskattur á eldsneyti var lækkaður 1. maí úr 24 prósentum í 11 til að bregðast við verðhækkunum á heimsmarkaði. Breytingin er tímabundin og gildir út ágúst.Samkeppniseftirlitinu var gert að fylgjast með því að lækkunin skilaði sér til neytenda. Í nýlegri samantekt ASÍ kemur fram að lækkunin hafi skilað sér að fullu hjá öllum félögum nema Costco.Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir eitt mál vera til skoðunar en vill ekki upplýsa hvaða félag það varðar.„Varðandi lækkunina 1. maí þá erum við að bíða skýringa frá einu félagi til þess að geta sagt með allri vissu að lækkunin hafi átt sér stað þá. En það er ekki eina verkefni