Noregur 3 - 1 Svíþjóð 1-0 Jorgen Strand Larsen ('8 ) 2-0 Antonio Nusa ('18 ) 3-0 Jorgen Strand Larsen ('37 ) 3-1 Alexander Isak ('76 ) Noregur fékk Svíþjóð í heimsókn í næst síðasta leik liðanna fyrir HM sem hefst þann 11. júní. Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik. Jörgen Strand Larsen, leikmaður Crystal Palace, kom Norðmönnum yfir strax á 8. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir fasta fyrirgjöf frá Julian Ryerson, leikmanni Dortmund.