Brjóstakrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá íslenskum konum og er nærri þriðjungur af öllum meinum sem greinast.Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar gefa til kynna að með erfðaprófum sé hægt að meta líkurnar á gagnsemi lyfjameðferðar.Slík erfðapóf eru notuð hér og framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að íslenskir sjúklingar njóti góðs af.Teymi við Lundúnaháskóla stóð að rannsókninni sem náði til sex landa og þátttakendur voru ríflega fjögur þúsund nýgreindir einstaklingar, yfir fertugu.Um tveir þriðju þátttakenda rannsóknarinnar fengu lága áhættueinkunn og fengu því andhormón sem eftirmeðferð í stað lyfjameðferðar. ÁNÆGJULEGT AÐ PRÓFIÐ SÉ NOTAÐ HÉR Síðustu þrjú ár hefur verið notast við þetta sama erfðapróf og notað var í rannsókninni, hér á landi, til að meta þö