Undirokun á réttindum launafólks hefur aukist um allan heim, segir í nýrri ársskýrslu Alþjóðasambands verkalýðsfélaga, sem kynnt var í morgun. Skýrslan tekur til 151 ríkis og reyndust 72 prósent þeirra neita launafólki um að leita réttar síns. Þá hafi ríki Evrópu og Ameríku ekki komið verr út úr síðan árið 2014, segir í skýrslunni, og vísað til aukningar í stafrænu eftirliti til að fylgjast með og ógna starfsfólki„Vandinn er ekki lengur bundinn við jaðarinn heldur er hann kominn inn í kjarna lýðræðissamfélaga, segir Luc Triangle, framkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga, í yfirlýsingu.Í skýrslunni kemur fram að brotið hafi verið á verkfallsrétti í 87 prósentum ríkja, sem er sama hlutfall og síðustu tvö ár á undan, og réttur til kjarasamningsviðræðna var takmarkaður í 80 prósentum r