Starfsmenn heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga eru uggandi yfir fyrirhuguðum skipulagsbreytingum sem taka eiga gildi um áramótin. Verði lagabreytingar samþykktar færast verkefni þeirra til ríkisstofnana.Margir af starfsmönnum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga funduðu í dag með Félagi íslenskra náttúrufræðinga en mikil óvissa er um framtíð heilbrigðiseftirlits, störf starfsfólks og kjör þess. Skrifstofum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga var lokað í dag vegna fundarins á milli tíu og eitt. Vel á sjöunda tug starfsmanna sóttu fundinn.Þorkell Heiðarsson, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN), segir að mikil óvissa hafi verið um breytingarnar síðan þær voru tilkynntar.„Það virðist vera sem öllu starfsfólki verði sagt upp hjá núverandi vinnuveitendum, sem eru sveitarfélög eða sjálfse