Skjálfti af stærðinni 4,5 skók suðvesturhornið rétt fyrir klukkan tvö í dag. Skjálftinn var snarpur og fannst víða. Skjálftanum hafa fylgt nokkrir smærri eftirskjálftar.Ninna Sif Svavarsdóttir, íbúi í Hveragerði og sóknarprestur, var heima við þegar skjálftinn reið yfir. Hún segist hafa fundið vel fyrir honum, hann hafi verið snarpur en farið fljótt yfir. Hún segist ekki hafa orðið smeyk við hristinginn enda séu skjálftar tíðir á svæðinu.„Ég held að við séum bara vön þessu og maður bara treystir því að þegar vísindamennirnir segja að þetta sé ekki upphafið að neinu alvarlegu, þá er maður bara rólegur.“Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofu Íslands, segir ekkert benda til þess að kvikusöfnun sé á svæðinu, allar líkur séu á að um sniðgengisskjálfta sé að ræða.