Foreldrar geta nú séð niðurstöður barna sinna úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils í stærðfræði og lesskilningi inni á Mínum síðum á island.is.„Þessar niðurstöður eiga að segja heilmikið til um stöðu barns í þessum fögum sem um er að ræða,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.Hún segir að niðurstöðurnar sýni stöðu barna svo hægt verði að koma betur til móts við þau. Þá verði þær notaðar til að opna á samtal og samvinnu milli skóla og heimilis.Prófin voru lögð fyrir 57 þúsund nemendur í fjórða til tíunda bekk í mars. SJÁ STÖÐUNA OG SÍÐAR ÞRÓUNINA Þórdís Jóna útskýrir að foreldrar geti séð hlutfall réttra svara barna sinna. „Einnig brjótum við prófin niður í fjóra þætti þar sem hægt er að sjá á hvaða bili barnið er og hvað það í raun þýðir.“