Alls bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí 2026, þar sem 370 starfsmönnum var sagt upp störfum. Frá þessu segir á vef Vinnumálastofnunar.Flestar uppsagnirnar í maí tengdust gistingu og ferðaþjónustu.RÚV / Ágúst ÓlafssonFlestir þeirra sem sagt var upp störfum störfuðu í gistiþjónustu, alls 270 starfsmenn.26 starfsmönnum í störfum tengdum ferðaþjónustu var sagt upp störfum, 37 í sjávarútvegi og 37 í fjármálastarfsemi.Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á síðari helmingi þessa árs.