Engar vísbendingar um kvikusöfnun

Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofu Íslands, telur ljóst að jarðskjálfti sem varð í dag í Hengli tengist flekahreyfingum og að ekki séu neinar vísbendingar um kvikusöfnun á svæðinu.Jarðskjálftinn var af stærðinni 4,5 og varð korter fyrir tvö í Henglinum vestan við Húsmúla. Hann fannst vel á Suðvesturlandi, meðal annars í Hveragerði, á Selfossi og á höfuðborgarsvæðinu. Veðurstofu bárust einnig tilkynningar um að hann hefði fundist á Akranesi og undir Eyjafjöllum. SPENNULOSUN HAFI ORÐIÐ Dreifing eftirskjálfta og brotlausnir stærstu jarðskjálftanna benda til þess að um sniðgengisskjálfta sé að ræða á norður-suður misgengi á brotabelti Suðurlands og Reykjaness.„Þetta eru svona flekahreyfingar sem hegða sér þannig að þær hegða sér eins og við erum vön að sjá á norður
Engar vísbendingar um kvikusöfnun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd