Mótmælendur blésu í flautur og hrópuðu á þingfundi um þrjúleytið í dag til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um brottfararstöðvar. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hafði nýlokið framsögu á málinu þegar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, ætlaði að taka til máls en gat lítið sagt vegna látanna. Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, sem stýrði þingfundi gerði hlé á þingfundinum. Lesa meira