Skjálftinn sem fannst á suðvesturhorninu klukkan korter í tvö og mældist 4,5 að stærð átti upptök sín vestur af Húsmúla á Hellisheiði. Náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands, Jóhanna Malín Skúladóttir, segir skjálftann vera þann stærsta á svæðinu síðan 2022.