Hlé gert á þingfundi vegna mótmæla af þingpöllum

Hlé var gert á þingfundi nú á fjórða tímanum eftir að mótmælendur trufluðu fundinn með hrópum og lúðrablæstri af þingpöllum.Þingmenn voru þá að ræða frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöðvar, þar sem á að vista útlendinga áður en þeim er vísað úr landi.Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, var nýstiginn í pontu þegar mótmælandinn hóf að flauta og blístra af þingpöllum.Erfitt að heyra orðaskil en ljóst að mótmælandinn segir þingmönnum að skammast sín. Ingvar Þóroddsson, einn af varaforsetum þingsins sem stýrði þingfundi, var fljótur að hringja bjöllunni og tilkynna að fundi hefði verið frestað. Skömmu síðar var lokað fyrir hljóð og mynd á þingrásinni.Þingfundi var frestað eftir að mótmælendur trufluðu fundinn með hrópum og lúðrablæstri af þingpöllum. Þingmenn voru að ræða fyrirhugaðar
Hlé gert á þingfundi vegna mótmæla af þingpöllum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd