Ljósmyndaflug yfir Suðurlandi

Tvær flugvélar sem flugu nokkuð lágt nálægt Selfossi í dag voru þar í ljósmyndaflugi. Fréttastofu bárust ábendingar um að tvær flugvélar flygju nálægt hvor annarri á svæðinu.Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að þetta hafi verið ljósmyndaflug á vegum flugvélaframleiðanda. „Verið er að mynda fyrir auglýsingu. Önnur vélin er mynduð úr hinni.“Guðjón segir flugið vera gert með leyfi Avians, dótturfélags Isavia sem annast flugleiðsögu, með fyrirvara um að farið verði eftir viðeigandi reglum og verklagi.Flugvélaframleiðandinn sem um ræðir er hinn bandaríski Gulfstream.Tvær flugvélar flugu lágt og nálægt hvorri annarri yfir Suðurlandinu í dag. Samkvæmt Isavia er um ljósmyndaflug að ræða.
Ljósmyndaflug yfir Suðurlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd