Þrátt fyrir að óvissan hafi sjaldan verið meiri í rekstri Icelandair, einkum vegna hækkandi eldsneytisverðs og kjaradeilna við flugmenn, þá er félagið verðmetið á nærri tvöfalt hærra verði en núverandi markaðsgengi í nýrri greiningu. Því er spáð að Icelandair muni skila yfir tíu milljarða króna rekstrartapi á þessu ári en áður var áætlað að afkoman yrði kringum núllið.