Íranski miðillinn Tasnim, sem er tengdur stjórnvöldum í Íran, greinir frá því að Íranar ætli ekki að halda áfram viðræðum við Bandaríkin um frið fyrr en Ísraelsher hættir árásum í Líbanon og á Gaza.Ísraelsk stjörnvöld taka sífellt meira landsvæði í Líbanon og forsætisráðherra fyrirskipaði árásir á úthverfi höfuðborgarinnar Beirút í morgun. Leiðtogar í Evrópu fordæma framferði ísraelskra stjórnvalda og Frakkar krefjast skyndifundar í öryggisráðinu.Þrátt fyrir að vopnahlé sé enn í gildi heldur Ísraelsher áfram að færa sinn innar í landið og skipa íbúum borga og bæja í suður-Líbanon á flótta. Ísraelsher heldur líka áfram árásum að skipan stjórnvalda, nú síðast í morgun fyrirskipaði forsætisráðherran Benjamín Netanjahú árásir á úthverfi í Beirút.Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir ekkert r