Snarpur jarðskjálfti reið yfir á suðvesturhorninu klukkan 13:46 í dag og fannst hann vel víða, þar á meðal á Akranesi og Þorlákshöfn. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum virðist stærð hans hafa verið 4,5 og eru upptök hans vestan við Hengilinn, eða á þeim slóðum þar sem skjálftahrina hefur verið í gangi síðan í gærmorgun.