Húsráðandi á Kársnesi í Kópavogi sem vaknaði upp við innbrotsþjófa sem brutust inn til hans um miðja nótt að miðri nóttu segist vera hugsi yfir hugrekki þjófanna sem virtu Securitas miða að vettugi áður en þeir létu til skarar skríða. Hann segist þakklátur fyrir að hafa verið einn heima enda sitji atburðarásin enn í honum.