Hákon krónprins Noregs kemur degi fyrr heim frá Japan en áætlað var vegna þess að heilsu eiginkonu hans Mette-Marit krónprinsessu hefur hrakað. Dóttir þeirra Ingiríður Alexandra ætlar einnig að koma heim frá Ástralíu.Hákon ræddi við fjölmiðla í Tókýó í morgun og greindi frá því að hann ætlaði að stytta opinbera heimsókn sína til Japan um einn dag. „Ég bið alla sem ég hefði átt að hitta síðasta daginn afsökunar. Mér finnst mikilvægt að fara heim og vera hjá Mette. Ég kýs að gera það því henni líður ekki vel.“Hákon krónprins Noregs fer fyrr heim en áætlað var úr opinberri heimsókn til Japans. Ástæðan eru veikindi eiginkonu hans, Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir þeirra ætlar einnig heim til að vitja móður sinnar en hún er í námi í Ástralíu.Árið 2018 greindist Mette-Marit með sjúkdóminn lungn