Ungmennafélag Selfoss var stofnað annan í hvítasunnu 1. júní 1936 og fagnar 90 ára afmæli í dag. Haldið var upp á afmælið í gær á Hótel Selfossi þar sem ýmsir voru heiðraðir, auk þess sem boðið var upp á glæsilegt kaffihlaðborð.Helgi S. Haraldsson núverandi formaður félagsins er sá þrítugasti til að gegna því embætti á þessum 90 árum.„Já, þetta er merkilegt félag og margt á daga þess drifið frá því að það var stofnað 1936. Þetta er stórt og mikið félag en félagið er deildaskipt með 12 deildir og því 12 íþróttagreinar. Við erum með tvö þúsund og fimm hundruð iðkendur, átta þúsund félagsmenn og félagið veltir um 650 milljónum á ári og borgar inn í samfélagið launagreiðslur um 340 milljónir, þannig að við erum stór,” segir Helgi.Þetta er vel gert hjá ykkur?„Já, þetta er vel gert og þess vegna