Fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna gruns um kynferðisbrot gegn fósturbarni

Fertugur karlmaður, sem grunaður er um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni sem vistað var hjá honum í fóstri, hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Þetta staðfestir Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum.Maðurinn var handtekinn um miðjan maí og húsleit gerð á heimili hans. Hann hefur verið í haldi lögreglu síðan. Hann býr á Suðurnesjum og er með nokkur börn í fóstri.Alda Hrönn segir að sem stendur sé brot gegn einu barni til rannsóknar. Nokkrar skýrslur hafa veirð teknar og rannsókn miðar vel.
Fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna gruns um kynferðisbrot gegn fósturbarni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd