Hundruð ungmenna mótmæltu fyrir utan bandaríska herstöð í bænum Nanyuki í morgun. Þar hafa Bandaríkjamenn sett upp einangrunarmiðstöð fyrir bandaríska ríkisborgara sem eru smitaðir af ebólu eða gætu hafa smitast. Hæstiréttur Keníu komst nýverið að þeirri niðurstöðu að miðstöðin mætti ekki vera þar í landi.