Tveir særðir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju

Tveir særðust þegar mikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju á Möltu í morgun. Mikinn reyk lagði frá verksmiðjunni, brak skaust í allar áttir, byggingar titruðu og rúður sprungu.Fyrsta sprengingin varð klukkan 6:35 að staðartíma og skömmu síðar varð önnur stærri. Nokkrar minni sprengingar hafa fylgt í kjölfarið.Enginn var í verksmiðjunni þegar sprengingin varð. Mennirnir sem slösuðust voru við vinnu á ökrum nærri verksmiðjunni.Í frétt Times of Malta má sjá myndir og myndskeið af sprengingunni.Kraftmikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju á Möltu í morgun. Tveir særðust og fjöldi bygginga varð fyrir skemmdum.
Tveir særðir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd