Mjög misjafnt álag er á starfsfólki grunnskóla og mest mæðir á umsjónarkennurum samkvæmt niðurstöðum nýlegrar skýrslu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Einn af hverjum tíu umsjónarkennurum telur sig búa við þrúgandi álag.Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segist fagna skýrslunni en segir ekkert koma henni á óvart við niðurstöður hennar.„Því miður, því þarna er verið að lýsa gríðarlegu álagi og þungu starfsumhverfi sem þarf að taka á,“ segir hún. AUKIN, OFT KREFJANDI, SAMSKIPTI VIÐ FORELDRA Í skýrslunni var neikvæð umræða um skólastarf í samfélaginu nefnd sem veigamikil ástæða álags á starfsfólk og færi hún vaxandi. Þá hefði nemendahópurinn orðið fjölbreyttari, hegðunarvandi vaxið og þyngri málum fjölgað.Mat viðmælenda var að þátttaka sk