Brim hf. hefur selt 43 prósenta eignarhlut sinn í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi til KG Fiskverkunar ehf. Kaupverðið nemur 1,8 milljörðum króna, samkvæmt tilkynningu frá stjórn Brims. Greitt verður fyrir hlutinn með hlutabréfum í Brimi. KG Fiskverkun lætur af hendi 20,7 milljónir hluta í Brimi að nafnvirði og miðast viðskiptin við gengið 88 krónur á hlut. Það var...