Komum skemmtiferðaskipa til Íslands fækkar ár frá ári á meðan vöxtur er í greininni á heimsvísu. Á Borgarfjörð eystra komu 21 skip í fyrra og þau verða 14 í sumar en stefnir í aðeins eitt 2028. Þeir sem hafa haft atvinnu af því að þjónusta farþega hafa áhyggjur af þróuninni.Árni Magnús Magnusson, leiðsögumaður og framkvæmdastjóri Fjarðahjóla, selur göngu- og hjólaferðir í umhverfi Borgarfjarðar og segir komur skemmtiferðaskipa hafa verið festuna í sínum rekstri, sem annað hafi byggt ofan á.„Þetta hefur náttúrulega stórkostleg áhrif á reksturinn minn og rekstrarfyrirkomulagið, af því að ég var að reiða mig á þessar dagsetningar og þessar komur, þetta eru töluverðar tekjur fyrir mig og fyrir okkur hérna í þorpinu.“Hjá Árna voru bókaðar 13 dagsetningar í fyrra þar sem hann tók á móti farþegum